Vegna umræðu í fjlmiðlum og á spjallsvæðum um mælingar netfyrirtækja á hvað telst vera erlent niðurhal vill Snerpa árétta að magnmælingar eru gerðar með þeim hætti hjá Snerpu að umferð á tengingu til notenda er mæld skv. þeim IP-tölum sem hún kemur frá.
Þannig telst það vera innlend umferð sem kemur frá innlendum IP-tölum, þar með talið umferð frá íslenskum speglaþjónum. Notendum til glöggvunar birtir Snerpa einnig heildarumferð í notkunarsundurliðun og má með því móti gera sér grein fyrir hvort notkun tiltekinn dag sé í samræmi við væntingar.
Þegar metið er innifalið gagnamagn á nettengingum er því ágætt að hafa í huga að netveitur beita ekki endilega allar sömu aðferðum við magnmælingar. Magnmælingar Snerpu hafa verið gerðar með sama hætti allt frá því að Snerpa bauð fyrst sítengt Internet árið 2001