Vegna uppfærslu á vélbúnaði hjá Snerpu má búast við sambandstruflunum
yfir xDSL-sambönd (ADSL / /Ljósnet / Smartnet) miðvikudagsmorguninn 26. nóvember
á tímabilinu kl. 5:50 og 6:10.
Eftir útskiptingu á búnaði þarf endabúnaður notenda (router) að auðkenna sig á ný
og getur þurft að endurræsa hann ef hann fer ekki sjálfkrafa í auðkenningu.
Flestar útibúatengingar fyrirtækja og IPTV verða ekki fyrir áhrifum af þessu.
Á sama tíma er fyrirhugað að stækka minni í einum af vefþjónum Snerpu og munu
vefir á honum verða óvirkir á sama tíma. Þetta á við um þá vefi sem ekki nota
Snerpil vefkerfið og eru flestir á Wordpress vefumsjónarkerfinu.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Uppfærslu vegna xDSL sambanda var lokið kl 06:02
Uppfærslu á vefþjón lauk kl. 06:10 nema vefpósti Snerpu sem lauk kl. 06:40